Ríkislögreglustjóri hefur, í samráði við lögreglustjórann á Austurlandi, aflýst hættustigi almannavarnadeildar vegna veðurs sem gekk yfir Austurland síðasta sólarhring. Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.
Er þar enn fremur vísað til þeirra ummæla á vef Veðurstofu Íslands að illviðrið síðasta dægrið hafi verið afleiðing djúprar lægðar vestan við land sem myndaði kröftugan vindstreng yfir landið í samspili við háþrýstisvæði yfir Bretlandi.
„Í ljósi þess hversu mikill fjöldi sjálfboðaliða kom að hundruðum verkefna á síðasta sólarhring – þar sem markmiðið var að takmarka tjón eins og kostur var – er ástæða til að hrósa og þakka öllum þeim sjálfboðaliðum sem komu að þessu langa og stranga verkefni úti um allt land,“ segir í tilkynningunni þar sem auk þess er tæpt á gildi þess að almenningur sé viðbúinn.
„Það er ljóst að svona viðburðir minna okkur á mikilvægi þess að vera viðbúin fyrir það sem náttúran býður upp á og það að hafa svo öflugt net sjálfboðaliða og viðbragðsaðila sem geta brugðist hratt við á neyðarstundu, er ómetanlegt fyrir íslenskt samfélag,“ segir þar.
Fram kemur að lokum að samhæfingar- og stjórnstöð hafi lokið störfum, en hún var virkjuð klukkan 14 í gær.