„Við skrifuðum undir viljayfirlýsingu um verkefnið á síðasta ári en vorum að klára samning um svæðið núna í vikunni og nú getum við farið að byrja skipulagsvinnuna og hönnun á svæðinu,“ segir Jóhann Guðni Reynisson, framkvæmdastjóri Blue Vacations og einn af eigendum Ektabaða ehf.
Samningur Ektabaða ehf. við Dalvíkurbyggð verður til 99 ára og var hann undirritaður á Baccalau bar Elvars Reykjalín, sem er framkvæmdastjóri Ektafisks og frumkvöðull í ferðamennsku á Hauganesi.
„Núna getum við farið að undirbúa framkvæmdir fyrir alvöru, en við fengum 10 hektara lands upp af fjörunni við Hauganes í Eyjafirði og þar er áformuð ferðatengd starfsemi á vegum Ektabaða ehf. þar sem verða m.a. hótel, bústaðir og böð.“
Næsta skref verður að breyta aðalskipulagi og gera deiliskipulag og hanna mannvirkin samhliða því í áföngum að sögn Jóhanns Guðna. „Við reiknum með að í fyrstu atrennu munum við byrja á böðunum og einhverjum bústöðum og svo verður uppbygging á næstu árum miðað við þær hugmyndir,“ segir hann og bætir við að umsjón með hönnunarvinnunni sé á borði Nordic Office of Architecture, sem Ektaböð unnu með að tillögunni fyrir svæðið sem send var til sveitarstjórnar Dalvíkurbyggðar í fyrra.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag