Báru slasaðan ferðamann kílómetra á börum

Frá slysstað í dag.
Frá slysstað í dag. Ljósmynd/Landsbjörg

Ferðamaður slasaðist við Fardagafoss rétt ofan Egilsstaða í dag. Voru björgunarsveitir kallaðar út.

Ferðamaðurinn hafði hrasað og gat í kjölfarið ekki stigið í fótinn.

Björgunarsveitirnar Jökull á Jökuldag og Hérar á Héraði ásamt sjúkraflutningafólki fóru upp að fossinum, spelkuðu fótinn og verkjastilltu. Viðkomandi var þá komið fyrir í börur.

Þá var ferðamaðurinn borinn um kílómetra vegalengd niður á veg og fluttur með sjúkrabíl til aðhlynningar, að því er segir í tilkynningu frá Landsbjörg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert