Barnamálaráðherra átti barn með 15 ára dreng

Ásthildur Lóa Þórsdóttir, mennta- og barnamálaráðherra.
Ásthildur Lóa Þórsdóttir, mennta- og barnamálaráðherra. mbl.is/Karítas

Ásthild­ur Lóa Þórs­dótt­ir barna­málaráðherra í rík­is­stjórn Kristrún­ar Frosta­dótt­ur átti barn með 15 ára göml­um pilti þegar hún var 22 ára göm­ul, eða fyr­ir rúm­lega þrem­ur ára­tug­um.

Rík­is­út­varpið grein­ir frá.

Ásthild­ur átti í ástar­sam­bandi við dreng­inn, Ei­rík Ásmunds­son, en hún kynnt­ist hon­um þegar hún leiddi ung­lingastarf í trú­ar­söfnuðnum Trú og líf í Kópa­vogi. Dreng­ur­inn hafði leitað þangað þar sem aðstæður heima fyr­ir voru erfiðar.

Barns­faðir Ásthild­ar seg­ir að hún hafi tálmað sig í en einnig krafið hann um meðlög í 18 ár.

Ein­stak­ling­ur und­ir 18 ára telst vera barn

Ástar­sam­bandið hófst þegar hann var fimmtán ára gam­all og fljót­lega eft­ir að það hófst varð Ásthild­ur ólétt. Þegar barns­faðir­inn var 16 ára og Ásthild­ur 23 ára þá eignuðust þau sam­an son.

Vert er að taka fram að ein­stak­ling­ar und­ir 18 ára telj­ast börn í skiln­ingi lag­anna. Í frétt RÚV seg­ir:

„Sam­ræðis­ald­ur er hins veg­ar fimmtán ár, en var áður fjór­tán ár. Þetta er þó ekki al­gilt því óheim­ilt er að hafa sam­ræði við mann­eskju und­ir átján ára ef viðkom­andi er til dæm­is kenn­ari henn­ar eða leiðbein­andi. Þá er sömu­leiðis óheim­ilt að hafa sam­ræði við mann­eskju ef hún er und­ir átján, er háður viðkom­andi fjár­hags­lega, í at­vinnu sinni, eða sem skjól­stæðing­ur í trúnaðarsam­bandi. Þetta get­ur varðað allt að þriggja ára fang­elsi.“

Ásthild­ur hafnaði barns­föður að um­gang­ast barnið

Fram kem­ur að Ásthild­ur Lóa hafi fyrstu mánuðina átt frum­kvæði að því að finna tíma fyr­ir feðgana til að hitt­ast. Eft­ir að hún kynnt­ist eig­in­manni sín­um hafi það þó breyst að sögn Ei­ríks.

Hann leitaði til dóms­málaráðuneyt­is­ins og fjöl­skylduþjón­ustu kirkj­unn­ar og fór fram á það að fá að um­gang­ast dreng­inn.

Frétta­stofa RÚV kveðst hafa fengið gögn sem staðfesta það og þar kem­ur líka fram að Ásthild­ur Lóa hafi hafnað hon­um um um­gengni.

Fékk að hitta barnið í sól­ar­hring á ári

Ei­rík­ur kveðst hafa fengið samþykkt­ar tvær klukku­stund­ir í mánuði með drengn­um, á heim­ili Ásthild­ar Lóu og eig­in­manns henn­ar. Það jafn­gild­ir ein­um sól­ar­hring á ári.

Ásthild­ur Lóa krafði hann um meðlag og maður­inn greiddi það í átján ár.

Rauf for­sæt­is­ráðuneytið trúnað?

For­sæt­is­ráðuneytið fékk er­indi um þetta mál á sitt borð fyr­ir viku síðan, frá aðstand­anda barns­föður ráðherra, sam­kvæmt RÚV. Starfs­menn ráðuneyt­is­ins full­vissuðu send­anda um að öll er­indi væru trúnaðar­mál.

Hins veg­ar fékk Ásthild­ur Lóa upp­lýs­ing­ar um inn­tak er­ind­is­ins og hver það var sem sendi það. Hún bæði hringdi í viðkom­andi og mætti á heim­ili hans í kjöl­farið.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert