Carbfix hættir við niðurdælingastöð í Straumsvík

Carbfix er með niðurdælingu koldíoxíðs á Hellisheiði en vill útvíkka …
Carbfix er með niðurdælingu koldíoxíðs á Hellisheiði en vill útvíkka starfsemina víðar. Hætt hefur verið við Coda Terminal verkefnið í Straumsvík. Ljósmynd/Aðsend

Car­bfix, dótt­ur­fé­lag OR, hef­ur hætt við áform sín um upp­bygg­ingu niður­dæl­ing­ar­stöðvar fyr­ir kol­díoxíð í Straums­vík und­ir heit­inu Coda Term­inal. Sigla átti með kol­díoxíð í fljót­andi formi til lands­ins og dæla því ofan í jörðina í Straums­vík.

Í til­kynn­ingu á vef fyr­ir­tæk­is­ins seg­ir að ekki hafi náðst sam­hljóm­ur milli full­trúa Hafn­ar­fjarðarbæj­ar og Car­bfix um fram­gang upp­bygg­ing­ar­inn­ar. Mun fyr­ir­tækið í staðinn ein­beita sér að öðrum verk­efn­um sem tengj­ast bind­ingu gróður­húsaloft­teg­unda frá inn­lend­um stóriðju­fyr­ir­tækj­um, en fyr­ir­tækið er með samn­inga við bæði Elkem á Grund­ar­tanga og Rio Tinto í Straums­vík. Þá á að þróa áfram mögu­leg verk­efni í Þor­láks­höfn og á Bakka við Húsa­vík.

„Ákvörðun er tek­in þar sem ekki náðist nægi­lega góður sam­starfs­grund­völl­ur fyr­ir verk­efnið með Hafn­ar­fjarðarbæ sem og taf­ir sem hafa haft áhrif á tíma­lín­ur okk­ar og okk­ar sam­starfsaðila. Verk­efnið í Straums­vík var það fyrsta sinn­ar teg­und­ar og í ný­sköp­un ger­ist það iðulega að verk­efni eru aðlöguð og þróuð áfram á öðrum for­send­um, við í Car­bfix þekkj­um það mjög vel og fyr­ir liggja spenn­andi hug­mynd­ir að verk­efn­um í Ölfusi og Norðurþingi. Þar bíða gríðarleg tæki­færi fyr­ir þau svæði og Ísland al­mennt í að byggja upp nýj­an iðnað með áherslu á lofts­lags­mál og ný tæknistörf. Við tök­um með okk­ur lær­dóm frá þessu verk­efni og höld­um ótrauð áfram. Mark­mið Car­bfix er áfram að út­víkka starf­semi sína og vera hluti af lausn­inni,“ er haft eft­ir Eddu Sif Pind, for­stjóra fé­lags­ins.

Tals­verð umræða hef­ur verið hér á landi und­an­farið vegna niður­dæl­ing­ar kol­díoxíðs. Höfðu íbú­ar í Hafn­ar­f­irði meðal ann­ars lýst yfir áhyggj­um af mál­inu og sagði formaður bæj­ar­ráðs óvíst að upp­bygg­ingaráformin í Straums­vík verði lögð fyr­ir bæj­ar­stjórn. Höfðu for­svars­menn bæj­ar­ins meðal ann­ars vísað til óvissu um um­hverf­isþætti og ávinn­ing nærsam­fé­lags­ins af slíkri niður­dæl­ingu.

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert