Málið umfangsmikið

Mynd úr safni.
Mynd úr safni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Verið er að taka skýrsl­ur af fólki í tengsl­um við stungu­árás og hópslags­mál í miðborg­inni í nótt. Að sögn El­ín­ar Agnes­ar Eide Krist­ín­ar­dótt­ur yf­ir­lög­regluþjóns er málið um­fangs­mikið. 

Greint var frá stungu­árás­inni seint í gær­kvöldi en hún átti sér stað á Ing­ólf­s­torgi. Mik­ill viðbúnaður lög­reglu var á svæðinu vegna árás­ar­inn­ar. 

Tveir voru flutt­ir á sjúkra­hús, ann­ar var stung­inn í þrígang og hinn var bar­inn í höfuðið með vopni.

Þrett­án manns eru enn í haldi lög­reglu, tíu í tengsl­um við stungu­árás­ina og svo þrír í tengsl­um við hópslags­mál­in. 

Að sögn El­ín­ar er enn margt á huldu varðandi málið og vinn­ur lög­regla að því að ná yf­ir­sýn á málið. 

 

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert