Sjö eru enn í varðhaldi vegna rannsóknar lögreglu á manndráps-, frelsissviptingar- og fjárkúgunarmáli sem upp kom þegar maður fannst þungt haldinn og lést á sjúkrahúsi þann 10. mars.
Jón Gunnar Þórhallsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir lögreglu sífellt meta hvort ástæða sé til þess að halda fólki áfram í haldi vegna rannsóknarhagsmuna.
„Við erum að meta þetta mörgum sinnum á dag,“ segir Jón Gunnar.
Fimm hafa nú verið á aðra viku í gæsluvarðhaldi.