Allt að 25% hækkun á áskriftum

Sýn Miklar hækkanir eru boðaðar.
Sýn Miklar hækkanir eru boðaðar.

Mikl­ar hækk­an­ir eru boðaðar á áskrift­ar­verði hjá sjón­varps­stöðvum Sýn­ar frá og með næstu mánaðamót­um.

Efn­isveit­an Stöð 2+ með aug­lýs­ing­um hækk­ar úr 3.990 krón­um á mánuði í 4.990 krón­ur. Nem­ur hækk­un­in um 25 pró­sent­um.

Stöð 2+ án aug­lýs­inga hækk­ar um 5%, í 6.490 krón­ur á mánuði.

Bæði Stöð 2 Sport Ísland og Stöð 2 Sport er­lent hækka úr 5.990 krón­um í 6.990 krón­ur á mánuði. Nem­ur hækk­un­in 17%.

Viðskipta­vin­ir hafa mátt sætta sig við mikl­ar hækk­an­ir á um­rædd­um áskrift­um síðasta árið. Fyr­ir ári kostaði áskrift að Stöð 2 Sport Ísland 4.990 krón­ur. Nem­ur hækk­un­in á einu ári 40%.

Stöð 2+ án aug­lýs­inga kostaði 4.990 krón­ur fram til 1. júní í fyrra er verð var síðast hækkað. Með boðaðri hækk­un um næstu mánaðamót hef­ur verðið verið hækkað um 30% á tíu mánaða tíma­bili. 

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert