Enn ein gönguljós á Hringbraut

Sæmundargatan liggur að Hringbraut og handan götunnar sést Bjarkargata. Margir …
Sæmundargatan liggur að Hringbraut og handan götunnar sést Bjarkargata. Margir fara gangandi þarna yfir og er það talið valda hættu. mbl.is/sisi

Um­hverf­is- og skipu­lags­ráð Reykja­vík­ur hef­ur samþykkt að hefja sam­tal við Vega­gerðina um að setja upp nýja ljós­a­stýrða gang­braut á Hring­braut.

Henni er ætlaður staður við Sæ­mund­ar­götu, ná­lægt há­skól­an­um. Rúm­lega 100 metr­um norðar á Hring­braut, við Þjóðminja­safnið, er gang­braut með ljós­a­stýr­ingu.

Mik­il um­ferð er um Hring­braut alla daga, ekki síst á há­anna­tíma, og lang­ar bíl­araðir geta mynd­ast við gang­braut­ir og ná­lægt hring­torg, Mela­torg. Frá torg­inu að Ánanaust­um eru sex ljós­a­stýrðar gang­braut­ir.

Við af­greiðslu máls­ins í ráðinu voru lögð fram marg­vís­leg gögn. Þar má sjá að árið 2013 tók Reykja­vík­ur­borg ákvörðun, í sam­ráði við veg­hald­ara Hring­braut­ar, Vega­gerðina, að gera ljós­a­stýrða gang­braut yfir Hring­braut á móts við Sæ­mund­ar­götu.

Göngu­ljós­in áttu að vera í beinu fram­haldi af hjól­reiðastíg sem hafði verið ákveðið að leggja eft­ir Sæ­mund­ar­götu. Voru fram­kvæmd­ir hafn­ar í sept­em­ber 2013 án þess að lög­regl­unni á höfuðborg­ar­svæðinu væri til­kynnt um þær.

Í kjöl­far þess að lög­regl­an setti sig upp á móti fram­kvæmd­inni ákvað þáver­andi meiri­hluti í borg­inni að hætta við hana.

Lesa má nán­ar um málið í Morg­un­blaðinu í dag

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert