Þórólfur Árnason tók formlega við sem borgarstjóri í Reykjavík af Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur í morgun. Ingibjörg Sólrún, sem hefur verið borgarstjóri níu undanfarin ár, afhenti Þórólfi lyklavöldin að ráðhúsinu á skrifstofu borgarstjóra klukkan níu í morgun.