Lokuðu leiðinni frá Landsspítala að Borgarspítala

Lögreglan í Reykjavík lokaði leiðinni frá Landsspítala að Borgarspítala, fyrir almennri bílaumferð um tíma í dag, til að liðka fyrir flutningi sjúklings á milli sjúkrahúsa. Lögreglan segir að þetta sé ekki algengt, en það hafi verið gert í þessu tilfelli þar sem flytja þurfti sjúklinginn með sérstökum hætti og ekki í sjúkrabíl. „Þetta var gert til að bíllinn þyrfti ekki að stöðva við umferðarljós á þessari leið,“ sagði lögreglan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert