Snerpa lækkar verð í örbylgjunetinu

Netþjónustan Snerpa hefur nú lækkað verð á sítengingum um örbylgju og segir að algengustu tengingar séu nú boðnar á hliðstæðu verði og ADSL-sítengingar. Þannig lækki tenging sem er allt að 256 kbps hraði með 500 MB niðurhali frá útlöndum um 7,1% úr 4900 krónum í 4550. Algeng tenging með 1000 MB niðurhal á allt að 256 kbps hraða lækki um 13,4% úr 6700 krónum í 5.800 krónur. Einnig hafi verið opnað fyrir örbylgjunetið á Ísafirði.

Hægt er að fá meiri hraða á Flateyri, Suðureyri, Ísafirði, Hnífsdal, Hólmavík og Drangsnesi. Þannig mun tenging á allt að 512 kbps hraða með 500 MB niðurhali frá útlöndum framvegis kosta 5650 krónur og tenging með allt að 1 Mbps hraða og 1000 MB niðurhali frá útlöndum mun framvegis kosta 8300 krónur á mánuði.

Snerpa segir í tilkynningu, að með þessum breytingum sé verið að einfalda gjaldskrá og örbylgjutengingar taki nú meira mið af verðskrá fyrir ADSL-sítenginar en áður. Nýlegar breytingar Símans á verðskrá sinni hafi ekki áhrif á þjónustuna, enda komi þær ekki til lækkunar á kostnaðarliðum nema að mjög litlu leyti. Vinsældir á örbylgjutengingum hafi verið nokkuð meiri en ráð var fyrir gert og m.a. vegna þess hafi þurft að fara örar í fjárfestingu vegna þeirra en áætlanir gerðu ráð fyrir, t.d. hvað varðar stækkanir á samböndum.

Hafin verður örbylgjuþjónusta á Þórshöfn og Bíldudal innan skamms og er einnig í undirbúningi stækkun á samböndum til Flateyrar og Þingeyrar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert