Ókeypis að hringja milli gsm-síma Og Vodafone á morgun

Og Vodafone býður viðskiptavinum sínum að hringja ókeypis og senda SMS frítt á milli GSM síma hjá Og Vodafone á sumardaginn fyrsta en tilefnið er árs afmæli fyrirtækisins. Þá verður erlent niðurhal viðskiptavina með ADSL tengingu hjá Og Vodafone einnig frítt á sumardaginn fyrsta.

„Þessi þjónusta stendur viðskiptavinum Og Vodafone til boða ókeypis í sólarhring, frá miðnætti aðfaranótt fimmtudags til miðnættis aðfaranætur föstudags,“ segir í fréttatilkynningunni.

Og Vodafone

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert