Leyft verður að veiða allt að 25 hrefnur í ár

Hrefna dregin upp í Halldór Sigurðsson ÍS í fyrrasumar.
Hrefna dregin upp í Halldór Sigurðsson ÍS í fyrrasumar. AP

Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra hefur ákveðið að gefa út leyfi fyrir því að veiddar verði allt að 25 hrefnur á þessu ári samkvæmt áætlun Hafrannsóknarstofnunarinnar um hvalveiðar í vísindaskyni. Hefur rannsóknartímabilið jafnframt verið lengt. Veiðunum verður stjórnað af Hafrannsóknastofnuninni.

Hvalarannsóknaáætlun Hafrannsóknastofnunarinnar var lögð fyrir vísindanefnd Alþjóðahvalveiðiráðsins á síðasta ári í samræmi við reglur ráðsins. Áætlunin gerir ráð fyrir því að 200 hrefnur, 200 langreyðar og 100 sandreyðar verði veiddar á rannsóknatímabilinu, sem upphaflega var gert ráð fyrir að gæti staðið í tvö ár.

Í fyrra hófst framkvæmd hrefnuhluta áætlunarinnar, en ekki hefur enn verið ákveðið að hefja framkvæmd langreyðar- eða sandreyðarhlutans. Einnig var ákveðið að taka færri dýr en upphaflega var gert ráð fyrir og voru 36 hrefnur teknar árið 2003. Rannsóknaáætlunin er þó óbreytt þar sem gert er ráð fyrir að 200 hrefnur verði teknar á rannsóknatímabilinu, sem verður þar með lengra en upphaflega var ráðgert.

Við framkvæmd rannsóknaáætlunarinnar á þessu ári verður haldið áfram á sömu braut og verða veiðarnar aftur í frekar smáum stíl. Þannig verða gefin út leyfi fyrir því að veiddar verði allt að 25 hrefnur á þessu ári. Umræddar veiðar eru í samræmi við stofnsamning Alþjóðahvalveiðráðsins og með þeim er vilji Alþingis framkvæmdur, sbr. ályktun Alþingis frá 10. mars 1999.

Samkvæmt 8. gr. stofnsamnings Alþjóðahvalveiðiráðsins fylgir réttinum til að stunda hvalveiðar í vísindaskyni sú skuldbinding að nýta afurðir hvalanna sem eru veiddir. Afurðir þeirra hrefna sem verða veiddar í ár verða nýttar eftir því sem hægt er þótt veiðarnar séu í vísindalegum tilgangi, eins og raunin er almennt með þær afurðir sem falla til við rannsóknastarfsemi Hafrannsóknastofnunarinnar.

Að sögn sjávarútvegsráðuneytisins eru vísbendingar um að stærð hrefnustofnsins geti haft veruleg áhrif á afrakstursgetu nytjafiska, þ.m.t. þorsks. Mikil óvissa sé um þessi áhrif einkum vegna skorts á gögnum um fæðusamsetningu hrefnu hér við land.

Megin markmið rannsókna Hafrannsóknastofnunarinnar sé að kanna betur hlutverk hrefnu í vistkerfi hafsins í kringum Ísland. Ljóst sé að nytjafiskar eru hluti af fæðu hrefnu, en samspil fiska og hrefnu í vistkerfinu er lítt þekkt. Í ljósi mikilvægis sjávarútvegs fyrir Ísland sé nauðsynlegt að hafa góðar vísindalegar upplýsingar um áhrif hrefnu á afrakstur nytjastofna og að geta sett hrefnu með fullnægjandi hætti inn í fjölstofnalíkön. Rannsóknirnar hafi jafnframt önnur markmið, sem m.a. tengjast líffræði hrefnu og erfðafræði.

Í tilefni ákvörðunar sjávarútvegsráðherra um framhald hrefnurannsókna hefur Hafrannsóknastofnunin opnað nýjan upplýsingavef um rannsóknirnar. Hægt er komast á hann með því að smella á krækjuna hér að neðan:

Upplýsingavefur um hrefnurannsóknir Hafró

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert