Varaforseti kínverska þingsins í heimsókn

Wang Zhaoguo, varaforseti kínverska þingsins, verður í opinberri heimsókn á Íslandi í boði Halldórs Blöndals, forseta Alþingis, dagana 9.-12. júlí 2004. Í för með Wang Zhaoguo verða fjórir þingmenn og starfsmenn kínverska þingsins og kínverska utanríkisráðuneytisins.

Varaforseti kínverska þingsins mun eiga fundi með forseta Alþingis, formanni utanríkismálanefndar og fulltrúum þingflokka. Hann mun einnig ræða við Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, og Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra.

Kínverski varaforsetinn mun fara í skoðunarferð um Reykjavík og Suðurland og meðal annars heimsækja Þingvelli og Nesjavelli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert