Mikið annríki hefur verið í sjúkraflugi frá Akureyri með vélum Flugfélags Íslands undanfarna daga. Til dæmis voru 6 flug föstudaginn 9 júlí og 4 flug voru mánudaginn 12 júlí.
Mánudaginn 5 júlí voru tvö flug til Grænlans. Annað til Kulusuk og hitt til Constable pynt. Frá báðum þessum stöðum þarf að fara með þyrlu til að sækja sjúklingana. Heildarfjöldi sjúkrafluga frá Akureyri það sem af er árinu er 170.