Tilkynnt var um stæka bensínlykt upp úr niðurfalli í bílskúr og fyrir utan hús í Smárahverfinu í Kópavogi um hálfníu í gærkvöldi.
Að sögn lögreglu er ekki vitað um upptök hennar en slökkviliðsmenn komu á vettvang og sinntu hreinsunarstarfi. Þá grunar að hellt hafi verið niður úr brúsa í ræsi í nágrenninu með þeim afleiðingum að þef lagði upp úr nærliggjandi niðurföllum.