Pakka með fíkniefnum kastað út um bílglugga við Blönduós

Lögreglan á Blönduósi hafði í gærkvöldi afskipti af ökumanni og tveimur farþegum bifreiðar á norðurleið.  Kannaðist lögreglan við mennina en þeir hafa komið við sögu hennar áður í ýmsum málum. 

Er ökumanni bifreiðarinnar voru gefin stöðvunarmerki var kastað út úr bifreiðinni litlum pakka, sem reyndist innihalda lítilræði af fíkniefnum. 

Mennirnir voru handteknir og færðir á lögreglustöðina á Blönduósi þar sem leitað var í bifreið þeirra, meðal annars með fíkniefnahundi lögreglunnar á Blönduósi.  Ekkert frekar fannst og var mönnunum sleppt að loknum yfirheyrslum.  Einn mannanna játaði að hafa átt fíkniefnin og kvað þau hafa verið ætlað til eigin neyslu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert