Hvalfjarðargöngunum var lokað í tæpa hálfa klukkustund í kvöld vegna bilunar steypubíls, skv. upplýsingum Spalar ehf. Fenginn var bílstjóri frá Borgarnesi til að keyra bílinn upp úr göngunum. Af öryggisástæðum var lokað fyrir umferð í báðar áttir frá kl. 18:21 til 18:49.