Og Vodafone og Orkuveita Reykjavíkur í samstarf um ljósleiðaravæðingu

Forstjórar Og Vodafone og Orkuveitu Reykjavíkur hafa undirritað viljayfirlýsingu um að félögin eigi samstarf um að ljósleiðaravæða heimili og fyrirtæki í landinu.

Fram kemur í tilkynningu til Kauphallar Íslands, að samhliða þessu stefni fyrirtækin að því að því að skilgreina starfsemi sína þannig að Og Vodafone einbeiti sér að markaðssetningu, vöruþróun og þjónustu við viðskiptavini en Orkuveita Reykjavíkur einbeiti sér að rekstri og uppbyggingu ljósleiðaranetsins.

Segja fyrirtækin, að með þessu sé að því stefnt að Orkuveita Reykjavíkur starfi fyrst og fremst á heildsölusviði en Og Vodafone á smásölusviði. Fyrirhugað samstarf feli meðal annars í sér að Og Vodafone eignast hlut Orkuveitu Reykjavíkur í Línu.Neti og Orkuveita Reykjavíkur tekur yfir ljósleiðaralagnir Og Vodafone.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka