Maður lést í átökum við lögreglu í Keflavík

Frá vettvangi í Keflavík í gær.
Frá vettvangi í Keflavík í gær. Víkurfréttir/Hilmar Bragi

Þrjátíu og þriggja ára gamall karlmaður lést í gær skömmu eftir að lögreglumenn í Keflavík höfðu lent í áflogum við hann og sett hann í handjárn. Málið hefur verið sent til embættis ríkissaksóknara til ákvörðunar um hvaða lögregluembætti skuli fara með rannsókn málsins.

Tilkynnt var til lögreglunnar í Keflavík kl. 17:04 í gær um mann sem var illa á sig kominn á gangi í Keflavík. Maðurinn virtist vera í annarlegu ástandi og var færður til lögreglustöðvar, að því er kemur fram á vef lögreglunnar í Keflavík. Lögreglan hringdi á heimili mannsins og svaraði karlmaður í símann, en fram kom í samtalinu að hann væri sonur mannsins sem lögreglan hafði fært til lögreglustöðvar.

Eftir samtalið þótti lögreglu ástæða til að kanna ástand sonarins og voru tveir lögreglumenn sendir á staðinn. Á vettvangi kom sonurinn á móti þeim út á lóðina fyrir utan húsið. Hann var æstur og árásargjarn og hafði í hótunum við lögreglumenn og mjög erfitt var að skilja hvað hann var að segja. Veittist hann að lögreglumönnunum og upphófust mikil átök milli hans og lögreglumannanna.

Þegar lögreglan hafði náð tökum á honum og sett hann í handjárn varð hann alvarlega veikur og lést skömmu síðar.

Karl Hermannsson, yfirlögregluþjónn í Keflavík, vildi ekki tjá sig nánar um málið, það hefði verið sent til embættis ríkissaksóknara til ákvörðunar um hvaða lögregluembætti skuli fara með rannsóknina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert