Heyrnarlausir láta í sér heyra

mbl.is/Kristinn

Fjöldi heyrnarlausra kom saman fyrir framan Alþingishúsið á Austurvelli nú fyrir stundu og blés í flautur, en þar eru nú umræður að hefjast um stefnuræðu forsætisráðherra. Félag heyrnarlausra var að mótmæla því að ekki hefur fengist fjárveiting til túlkunarþjónustu fyrir heyrnarlausa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert