Strokufangi ófundinn

Strokufangi, sem lögreglan í Reykjavík lýsti eftir í dag, er enn ófundinn samkvæmt upplýsingum lögreglu. Segir hún að engar vísbendingar hafi borist sem komið hafi að gagni við leitina. Maðurinn strauk frá fangelsinu Skólavörðustíg 9 um hádegisbil í dag. Hann er dökkhærður um 180 cm að hæð og um 75 kg. Fanginn er ekki talinn hættulegur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert