Þórólfur hættir sem borgarstjóri 30. nóvember

Þórólfur Árnason les yfirlýsingu sína á blaðamannafundi á Höfða í …
Þórólfur Árnason les yfirlýsingu sína á blaðamannafundi á Höfða í kvöld. mbl.is/Sverrir

Þórólfur Árnason tilkynnti fyrir stundu um afsögn sína sem borgarstjóri í Reykjavík á blaðamannafundi sem hann boðaði til í Höfða. Mikil umræða hefur verið um stöðu borgarstjóra vegna skýrslu samkeppnisráðs um samráð olíufélaganna en Þórólfur starfaði hjá Olíufélaginu á síðasta áratug. Þórólfur hættir störfum formlega sem borgarstjóri 30. nóvember. Ekki var tilkynnt á blaðamannafundinum hver arftaki hans verður í borgarstjóraembætti. Þórólfur hefur verið borgarstjóri í tæp tvo ár.

Þórólfur segir í yfirlýsingu sinni: „Undanfarna daga hef ég ásamt borgarfulltrúum Reykjavíkurlistans farið yfir stöðu mála. Við tókum sameiginlega ákvörðun, að ég fengi tækifæri til að skýra sjónarmið mín vegna niðurstöðu samkeppnisráðs um samráð olíufélaganna. Það var mér nauðsynlegt að verja heiður minn og Reykjavíkurlistanum nauðsynlegt að stilla saman strengi sína. Ég hef frá upphafi komið hreint fram varðandi störf mín fyrir Olíufélagið. Ég hef útskýrt minn þátt. Ég hef unnið eftir fremsta megni að upplýsa þessi mál. Ég tel ekkert nýtt hafa komið fram sem breytir mati á mínum hlut eða ábyrgð frá því frumskýrsla samkeppnistofnunar komst í hámæli fyrir rúmu ári.

Málið er hins vegar allt meira að vöxtum en nokkurn hefði órað fyrir. Það er mér mikils virði að borgarbúar eru ánægðir með störf mín í þágu borgarinnar og ég virðist njóta mikils traust sem borgarstjóri. Það hefur einnig komið fram að ekki ber neinn skugga á samstarf mitt við borgarfulltrúa og borgarstarfsmenn í störfum fyrir Reykjavíkurborg. Skoðanir eru hins vegar skiptar á meðal borgarbúa hvort ég eigi að gegna störfum sem borgarstjóri við núverandi aðstæður. Í því ljósi finnst mér mikilvægt að störf mín í almannaþágu litist ekki af þessum málum. Eða að þau hafi áhrif á framtíð og gengi Reykjavíkurlistans og Reykjavíkurborgar.

Á undanförnum dögum hef ég fundið fyrir ótrúlegri hvatningu fjölda fólks. Og ég met mikils þann mikla stuðning sem mér hefur hlotnast. Ég veit að margir munu vera ósáttir við þá ákvörðun sem ég hef tekið. Þá ákvörðun verð ég að taka sjálfur og það er mitt mat að hún er best fyrir Reykjavíkurlistann og mig sjálfan.

Ég var beðinn um að taka að mér starf borgarstjóra fyrir tæpum tveimur árum og bar það skjótt að eins og flestir vita. Ég er þakklátur fyrir það tækifæri sem mér gafst til að gegna störfum í almannaþágu og láta gott að mér leiða. Ástæðan fyrir því að ég tók það að mér var sú, að mér þótti vænt um Reykjavíkurlistann og það sem hann stendur fyrir.

Ég stend upp úr stóli borgarstjóra af sömu ástæðum og ég settist í hann. Það er sameiginleg niðurstaða mín og borgarfulltrúa Reykjavíkurlistann að ég láti af störfum borgarstjóra 30. nóvember næstkomandi. Ég er sannfærður um það, að það er rétt ákvörðun og ég óska Reykjavíkurlistanum og borgarbúum alls hins besta á komandi tímum,“ sagði Þórólfur í yfirlýsingu sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert