Símasamband komið á við Súðavík

Rafmagn er aftur komið á stöð Símans á Arnarnesi við Ísafjörð en bilun varð þegar snjóflóð féll á rafmagnsstaura á Arnarnesi við Ísafjörð um tvöleytið í nótt og orsakaði það rafmagnsleysi á svæðinu. GSM og talsímasamband til og frá Súðavík lá niðri í dag af sömu ástæðu en hægt var að hringja innan bæjarins. Útsendingar Rásar 1 og Rásar 2 lágu auk þess niðri á Ísafirði og á Súðavík.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert