Ríkisstjórnin samþykkir 150 milljón króna neyðaraðstoð til Asíu

Tekið til á strönd í Phang Na í Taílandi eftir …
Tekið til á strönd í Phang Na í Taílandi eftir flóðbylgjuna miklu. mbl.is/Sverrir

Á ríkisstjórnarfundi í dag var samþykkt að framlag Íslands vegna náttúruhamfaranna í Asíu verði samtals 150 milljónir króna, jafnvirði 2,5 milljón dollara.

Framlaginu, sem ætlað er til neyðaraðstoðar og enduruppbyggingar, er skipt á eftirfarandi hátt:

  • 5 milljónir króna til Rauða Kross Íslands sem lagðar voru fram strax í kjölfar náttúruhamfaranna.
  • 35 milljónir króna í hjálparflug til Taílands í byrjun árs þar sem slasaðir Svíar voru fluttir til síns heima.
  • 25 milljónir króna í þróunaraðstoð við Sri Lanka sem þegar hafði verið ákveðið að Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefji á árinu.
  • 50 milljóna króna aukaframlag í þróunaraðstoð og enduruppbyggingarstarf á Sri Lanka.
  • 10 milljónir króna til Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna.
  • 10 milljónir króna til Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna.
  • 6 milljóna króna aukaframlag til Rauða Kross Íslands.
  • 4 milljónir króna til Barnaheilla á Íslandi.
  • 5 milljónir króna til Hjálparstarfs kirkjunnar.

Á sama ríkisstjórnarfundi var jafnframt samþykkt að hækka framlag Íslands til Alþjóðaframfarastofnunarinnar (IDA) um 30% þannig að framlag Íslands á árunum 2006 - 2008 verði samtals 616 milljónir króna. IDA veitir styrki og vaxtalaus lán til fátækustu ríkja heims og gegnir stóru hlutverki í styrkveitingu og veitingu lána til ríkja á því svæði þar sem náttúruhamfarirnar áttu sér stað

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert