Þóttist vera kroppinbakur til að smygla skjaldböku

Kínverji þóttist vera kroppinbakur þegar hann reyndi að smygla skjaldbökunni sinni inn í flugvél. Wu, sem er á sjötugsaldri, límdi skjaldbökuna á bakið á sér áður en hann fór upp í vélina. Hann komst í gegnum öryggisgæsluna en vörður sem fannst hann heldur grunsamlegur stöðvaði hann, að því er fram kemur á fréttavefnum Ananova.

Þegar leitað var á honum fannst skjaldbakan sem var 20 cm í þvermál og um fimm kíló að þyngd. Wo sagðist vita að hann mætti ekki taka gæludýr með um borð en að honum þætti of vænt um skjaldbökuna sína til að skilja hana við sig.

Hann fór að lokum í aðra flugvél og tékkaði dýrið inn sem farangur.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þú sért skipulagður sjálfur geturðu ekki ætlast til að aðrir séu eins. Vandamálin geta vel verið fyrir hendi, þótt enginn sjá þau nema þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þú sért skipulagður sjálfur geturðu ekki ætlast til að aðrir séu eins. Vandamálin geta vel verið fyrir hendi, þótt enginn sjá þau nema þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes