Ungir jafnaðarmenn harma hvernig staðið er að ráðningu sendiherra

Ungir jafnaðarmenn, ungliðahreyfing Samfylkingarinnar, harma hvernig staðið er að skipunum í opinber embætti á Íslandi. Eitt nýjasta dæmið er skipun í embætti sendiherra fyrir Íslands hönd, að því er segir í tilkynningu frá hreyfingunni.

„Það er ljóst eftir þá skipun að samtryggingin milli íslenskra stjórnmálamanna liggur í sumum tilfellum þvert á flokkslínur,“ segir í tilkynningunni.

„Næsta kynslóð stjórnmálamanna verður að gæta þess að taka ekki upp sömu ósiði og hin, að því er virðist, óforbetranlega kynslóð stjórnmálamanna sem nú stýrir för á Alþingi Íslendinga. Innleiða verður á þeim vinnustað heilbrigðari viðhorf gagnvart embættum og störfum á vegum ríkisins. Ungir jafnaðarmenn vilja að störf sendiherra verði auglýst og þá geti t.d. att kappi umsækjendur sem hafa langan starfsferil innan utanríkisþjónustunnar, forkólfar úr atvinnulífinu, menntamenn og jafnvel fyrrverandi stjórnmálamenn. Hæfustu umsækjendurnir með slíkan bakgrunn gætu án efa sinnt alþjóðasamskiptum fyrir Íslands hönd með miklum sóma.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert