Kallar eftir málþingi um markaðssetningu sem beinist að börnum

Ingibjörg Þ. Rafnar, umboðsmaður barna.
Ingibjörg Þ. Rafnar, umboðsmaður barna. mbl.is

Ingibjörg Þ. Rafnar, umboðsmaður barna, segir að sér berist margar kvartanir og ábendingar um að auglýsingar, sem höfða eiga til barna og sýndar eru í sjónvarpi í kringum barnatímana, séu ótilhlýðilegar. Sumir foreldrar kalli eftir því að tilteknar auglýsingar verði bannaðar, t.d. þær sem auglýsi sætindi og óhollt fæði. Vill hún að málþing verði haldið þar sem tekið verði á þessu máli.

„Ég held að það sé miklu einfaldara að setja reglur eins og Norðmenn og Svíar hafa gert, sem banna auglýsingar í kringum barnaefni,“ sagði Ingibjörg í samtali við fréttavef Morgunblaðsins. Sé þar átt við sjónvarpsefni sem sérstaklega er ætlað litlum börnum.

„Ég tel að það sé orðið tímabært að við sem samfélag ræðum það hvernig auglýsingum og markaðssetningu gagnvart börnum er háttað. Viljum við hafa þetta svona, eins og það virðist vera að þróast, eða viljum við breyta einhverju?“ segir Ingibjörg. Því hafi hún m.a. rætt við talsmann neytenda um að kallað verði til málþings á nýju ári. Orð séu til alls fyrst.

Ingibjörg segir að Svíar og Norðmenn séu með ákvæði í lögum sínum þar sem segi annars vegar að auglýsingar sem beinist að börnum yngri en tólf ára séu bannaðar og hins vegar, að auglýsingar í kringum barnaefni í sjónvarpi séu bannaðar.

„Mér finnst þetta eitt af því sem við ættum að skoða, við ættum m.a. að skoða það hvort við ættum að gera greinarmun á því hvort auglýsingar beinast að ungum börnum. Ung börn hafa ekki þroska til að átta sig á því að um er að ræða auglýsingar [...] þarna er verið að nýta sér trúgirni þeirra og þroskaleysi eða reynsluleysi. Við erum með ákvæði í lögunum sem banna slíkt, bæði í lögum um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og í útvarpslögum. Kannski þurfum við bara að framfylgja þessum reglum sem við þó höfum betur en við gerum,“ segir Ingibjörg. Byrjunin sé þó að ræða þetta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert