Rafmagnslaust varð vegna bilunar í háspennustreng

Orkuveita Reykjavíkur segir að rafmagnslaust hafi orðið í Garðabæ kl. 17.41 í kvöld vegna bilunar í háspennustreng. Erfiðlega hafi gengið að koma rafmagni á í byrjun, en það hafi verið komið á að fullu kl. 20.10. Ekki er vitað hvað olli biluninni en viðgerðarflokkar eru á staðnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert