Iceland Express hefur beint flug milli Akureyrar og Kaupmannahafnar í sumar og verður fyrsta ferðin farin 29. maí, segir í fréttatilkynningu frá IE í kvöld. Vikulegar ferðir verði fram á haustið og jafnvel lengur.
Samkvæmt upplýsingum félagsins mun far milli höfuðstaða Norðurlands og Danmerkur kosta það sama og aðrir farmiðar Iceland Express, 7995 krónur aðra leiðina og hefst sala þeirra á næstunni.
Í sumar mun Iceland Express einnig fljúga til Frankfurt, Friedrichshafen, Berlínar, Stokkhólms og Alicante auk þess sem flogið er til Lundúna og Kaupmannahafnar árið um kring.