Opnaður hefur verið vefurinn mega.is en þar er m.a. að finna vefleiki sem hægt er að spila ókeypis. Þar er nú m.a. boðið upp leikinn Smoke attack þar sem markmiðið er að frelsa reykingamenn frá sígarettum.
Í tilkynningu kemur fram, að um sé að ræða PC-leik sem notendur geta sótt sér að kostnaðarlausu og sent inn skor og þannig keppt um verðlaun. Fá efstu leikmenn ferð frá Iceland Express eða tölvuleiki að eigin vali.