Feministafélag Akureyrar harmar „klaufaleg“ ummæli utanríkisráðherra

Feministafélag Akureyrar harmar þau ummæli sem að Geir H. Haarde utanríkisráðherra lét frá sér á fundi síðastliðið laugardagskvöld, þar sem hann ræddi um brottför hersins og þá möguleika sem við ættum í stöðunni. Geir notaði eftirfarandi samlíkingu: „Það er ekki alltaf hægt að fara heim með sætustu stelpunni á ballinu, en önnur gerir kannski sama gagn“, segir í tilkynningu frá félaginu.

Fram kemur að Feminstafélag Akureyrar leikur forvitni á að vita hvað hæstvirtur utanríkisráðherra átti við með þessari samlíkingu.

„Sem ráðamaður þjóðarinnar á Geir H. Haarde að gæta orða sinna og vera öðrum til fyrirmyndar. Feministafélag Akureyrar vill benda honum á að klaufalegt orðalag hans gerir ekki einungis lítið úr konum heldur líka honum sjálfum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka