Forseta Íslands boðið í afmælisveislu Svíakonungs

Karl Gústaf, Svíakonungur og Sylvia drottning.
Karl Gústaf, Svíakonungur og Sylvia drottning.

Karl Gústaf, konungur Svíþjóðar, hefur boðið Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands og Dorrit Moussaieff, forsetafrú, að taka þátt í hátíðarhöldum í Stokkhólmi næstkomandi laugardag og sunnudag í tilefni af sextugsafmæli konungs.

Meðal atburða verða hátíðardansleikur á laugardagskvöld í Drottningholm höllinni, guðsþjónusta að morgni sunnudags og hádegisverður í boði forseta sænska þingsins í ráðhúsi Stokkhólmsborgar. Að kvöldi sunnudags verða tónleikar og hátíðarkvöldverður í konungshöllinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert