Super Puma þyrla leigð í haust

TF-LIF á björgunaræfingu með sjómönnum.
TF-LIF á björgunaræfingu með sjómönnum. mbl.is/Dagur

Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra og Georg Kr. Lárusson forstjóri LHG undirrituðu í dag samning við forsvarsmenn fyrirtækisins Air Lift þá Bjarne Slapgard framkvæmdastjóra og Erlend Folstad markaðsstjóri um leigu á Super Puma þyrlu frá og með 1. október næstkomandi.

Í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu segir, að Landhelgisgæslan hafi um árabil verið í talsverðum samskiptum við Air Lift og hafi þyrluflugmenn Landhelgisgæslunnar m.a. starfað á Svalbarða og á hamfarasvæðunum í Pakistan á vegum Air Lift í fríum sínum til að öðlast meiri reynslu. Samstarf Landhelgisgæslunnar og Air Lift hafi einnig falist í samnýtingu á varahlutum. Air Lift sé bæði með þyrlur af gerðinni Super Puma og Aerospatiale Dauphin líkt og Landhelgisgæslan.

Þyrlan er leigð til eins árs með möguleika á framlengingu. Samningurinn hljóðar upp á 14 milljónir króna á mánuði og 150 þúsund krónur fyrir hvern floginn flugtíma.

Áætlaður kostnaður við samninginn til eins árs er um 210 milljónir króna. Ríkiskaup hafði umsjón með samningsgerðinni.

Fyrirhugað er að ganga frá samningum um aðra þyrlu fyrir nk. mánaðamót. Þá kynnti Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra í ræðu sinni í tilefni undirritunarinnar að það er stefna ríkisstjórnarinnar að kaupa tvær sambærilegar þyrlur á næsta ári.

Auk þess er fyrirhugað að endurnýja flugvél Landhelgisgæslunnar og varðskip á næstunni eins og áður hefur verið kynnt.

TF-LIF er þyrla af gerðinni Aerospatiale Super Puma AS-332L1.
TF-LIF er þyrla af gerðinni Aerospatiale Super Puma AS-332L1. mbl.is/Dagur
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert