Lögreglan á Selfossi vill stöðva „reykspól" á Austurvegi

Lögreglan á Selfossi segir, að nokkuð hafi verið um það að ungir menn hafi valið sér Austurveg á Selfossi, sem einnig er þjóðvegur númer eitt á Íslandi, til þess að reyna bíla sína og aka þeim hratt eftir götunni og „reykspóla" í hringi á miðjum akvegi með tilheyrandi hávaða, ískri og bremsulátum.

Hafa margar kvartanir borist frá íbúum og öðrum, ekki síst frá eldra fólki sem býr við Grænumörk, þar sem eru íbúðir eldra fólks í næsta nágrenni.

Lögreglan á Selfossi segir, að með þessu athæfi séu brotin all mörg ákvæði umferðarlaga og ástæða sé til þess að efast um næga kunnáttu í akstri og og umferðarlögum og -reglum. Hefur lögreglan tekið upp þann hátt að taka athæfið á myndband til þess að greina hvaða bílar og ökumenn eigi í hlut.

Lögreglustjóri hefur þegar lagt fyrir einn þeirra, sem myndir náðust af, að taka ökupróf að nýju. Segir lögreglan að væntanlega megi fleiri búast við slíkri meðferð náist til þeirra en auk þess að þreyta ökupróf megi viðkomandi búast við sektum fyrir athæfið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert