23 stelpur slógust um sætan strák

Lögregla var kvödd til er til slagsmála kom milli 23 táningsstúlkna í Búlgaríu, sem börðust um hylli sætasta stráksins í bekknum.

Stelpurnar eru á aldrinum 15-18 ára. Þær beittu hnúajárnum, keðjum og bjórflöskum í slagsmálunum.

Slagurinn var skipulagður og skrópuðu stelpurnar í skólanum til að hittast á leikvelli í Gorublyane-hverfinu í Sofíu, höfuðborg Búlgaríu, þar sem þær létu hendur skipta.

Nokkrar hlutu skrámur, og fjölmargir urðu vitni að slagsmálununum. Enginn gerði þó neitt í málunum fyrr en faðir einnar stúlkunnar kallaði á lögregluna.

Frá þessu greinir fréttavefurinn Ananova.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Samræður við stjórnendur, foreldra og yfirboðara eru beinskeyttar og ákafar í dag. Alls kyns spennandi tækifæri til vaxtar eru fyrir hendi núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Samræður við stjórnendur, foreldra og yfirboðara eru beinskeyttar og ákafar í dag. Alls kyns spennandi tækifæri til vaxtar eru fyrir hendi núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes