eftir Andra Karl
andri@mbl.is
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á fundi sínum í gærmorgun frumvarp samgönguráðherra um breytingar á umferðarlögum. Er því einkum ætlað að bregðast við hraða- og ofsaakstri auk þess sem auknar kröfur verða gerðar til yngri ökumanna. Breytingarnar eiga að taka gildi í síðasta lagi á alþjóðlegum umferðaröryggisdegi, 27. apríl nk.
"Af hálfu ráðuneytisins er alveg skýr stefna að við verðum að ná betri árangri í umferðaröryggismálum," sagði Sturla Böðvarsson samgönguráðherra eftir fund ríkisstjórnar. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að viðurlög við hraðakstursbrotum verði hert til muna og hlutfallslega hærri sektum beitt þegar akstur hefur í för með sér aukna áhættu. Einnig verður lögreglu gert kleift að gera ökutæki upptæk ef ökumaður verður uppvís að grófum og endurteknum brotum á umferðarlögum. Ekki er talið líklegt að ákvæðinu verði oft beitt en æskilegt þykir að hafa heimildina þannig að hægt sé að grípa til aðgerða gagnvart síbrotamönnum í umferðinni.
"Það er alveg ljóst að ungir ökumenn lenda gjarnan í umferðarslysum og í þessu frumvarpi er verið að taka sérstaklega á því máli," segir Sturla sem vonast til að hægt verði að stemma stigu við banaslysum. "Ég vona það svo sannarlega því við þurfum á því að halda."