Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi samþykktur

Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fyrir næstu Alþingiskosningar
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fyrir næstu Alþingiskosningar

Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi var samþykktur einróma á fundi kjördæmisráðs flokksins sem fram fór á Hótel Örk í Hveragerði í dag. Á fundinum kom fram breytingartillaga við tillögu kjörnefndar þar sem stærsta breytingin var að fella Árna Johnsen út af listanum. Sú tillaga var felld og listinn svo samþykktur eins og kjörnefndin lagði til.

"Nú er það stefna flokksins og störf sem skipta máli. Við höfum sterka og skilvirka stefnu sem hefur skilað meiri árangri en nokkru sinni við að bæta lífskjör þjóðarinnar. Við horfum bjartsýn fram á veginn til kosninganna 12. maí. Skoðanakannanir segja okkur að við eigum möguleika á 5 mönnum og það setjum við sem markmið í Suðurkjördæmi," sagði Árni Matthiesen fjármálaráðherra og efsti maður listans.

"Við erum fólkið með hlýja hjartað og það er verk að vinna með góðu fólki," sagði Árni Johnsen meðal annars þegar hann ávarpaði fundinn í Hveragerði. Kristján Pálsson skipar heiðurssæti listans. Hann kvaðst stoltur af því hlutverki og tók undir það markmið að flokkurinn fengi 5 menn kjörna í vor.

Framboðslistinn er þannig skipaður:
1. Árni M Matthiesen fjármálaráðherra
2. Árni Johnsen
3. Kjartan Ólafsson
4. Björk Guðjónsdóttir,
5. Unnur Brá Konráðsdóttir,
6. Drífa Hjartardóttir,
7. Guðjón Hjörleifsson,
8. Grímur Gíslason,
9. Helga Þorbergsdóttir,
10. Gunnar Örn Örlygsson,
11. Arnar Bjarni Eiríksson,
12. Guðbjörg Eyjólfsdóttir ,
13. Halldóra B. Jónsdóttir,
14 Brynjólfur Hjörleifson,
15. Hjördís H Reynisdóttir,
16. Elfa Dögg Þórðardóttir,
17. Gunnlaugur Kárason,
18. Unnur Þormóðsdóttir,
19. Laufey Erlendsdóttir,
20. Kristján Pálsson.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert