Vilja hefja undirbúning nýs vegar yfir Kjöl í einkaframkvæmd

Fulltrúar Norðurvegar kynna hugmyndi um nýjan veg yfir Kjöl.
Fulltrúar Norðurvegar kynna hugmyndi um nýjan veg yfir Kjöl. mbl.is/Sverrir

Félagið Norðurvegur ehf., sem er í eigu um 20 einstaklinga, fyrirtækja og sveitarfélaga á Norður- og Suðurlandi, stefnir að því að leggja nýjan veg yfir Kjöl í einkaframkvæmd. Segir félagið, sem hélt blaðamannafund í dag, að slíkur vegur stytti vegalengdina milli Reykjavíkur og Akureyrar um 47 kílómetra. Kostnaður er áætlaður 4,2 milljarðar króna.

Stjórn félagsins skipa Halldór Jóhannsson framkvæmdastjóri KEA, Jóhannes Jónsson í Bónus, Eiður Gunnlaugsson framkvæmdastjóri Kjarnafæðis, Kjartan Ólafsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi og Gunnar Þorgeirsson formaður Sambands sveitarfélaga á Suðurlandi.

Á heimasíðu félagsins segir, að markmið félagsins sé að ráðist verði sem fyrst í nauðsynlegar undirbúningsathuganir vegna vegagerðar um Kjöl með það að markmiði að tengja Norður- og Suðurland. Vitnað er í nýja skýrslu, sem Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri hefur unnið fyrir Norðurveg, en þar kemur fram að leiðin milli Reykjavíkur og Akureyrar styttist um 47 kílómetra. Fjarlægðir milli Norðurlands og Suðurlands styttast einnig mjög mikið og styttist vegalengdin frá Selfossi til Akureyrar um 141 kílómetra.

Framkvæmdakostnaður er áætlaður um 4,2 milljarða króna. Gert er ráð fyrir að veggjald verði greitt af þeim sem nota veginn og er útlit fyrir að gjaldið verði um 2000 krónur á ferð fyrir fólksbíl en um 8000 krónur fyrir þungaflutninga. Framkvæmdin á að geta borgað sig upp á 16 til 18 árum en gert er ráð fyrir að fyrsta rekstrarár árið 2010 verði um 500 bíla umferð á dag.

Vegurinn verður 8,5 metra breiður og upphækkaður um tvo til þrjá metra yfir nánasta umhverfi. Hámarkshalli vegarins verður ekki meiri en 6,5 %. Frumathuganir á veðurskilyrðum benda til þess að veðurfar sé sambærilegt við það sem gerist á Möðrudalsöræfum en félagið hyggst standa að frekari gagnaöflun á næstu mánuðum.

Norðurvegur segir, að framkvæmdin falli að öllu leyti að markmiðum, sem sett séu fram í samgönguáætlun til ársins 2014, m.a. um styttingu leiða milli þéttbýlissvæða og um aðkomu einkaaðila að samgönguframkvæmdum. Auk þessa samræmist framkvæmdin þeim tillögum, sem nefnd á vegum Samgönguráðherra um einkaframkvæmd í samgöngumálum skilaði af sér nýverið. Þar sem Kjalvegur sé hugsaður sem verkefni í einkaframkvæmd muni það ekki hafa áhrif á röð annarra framkvæmda í samgöngumálum og því segjast forsvarsmenn félagsins vænta jákvæðra viðbragða samgönguyfirvalda eins og áður.

Félagið segir að með veginum aukist öryggi í samgöngum milli landshluta og álag dreifist á samgöngumannvirki, sem aftur dragi úr viðhaldskostnaði. Með styttri leið milli landshluta dragi úr mengun frá útblæstri bifreiða. Framkvæmdin muni auka hagkvæmni í verslun og þjónustu auk þess sem aðgangur að nýjum ferðamannastöðum á hálendinu opnist.

Heimasíða Norðurvegar

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert