Flutt á sjúkrahús eftir eldsvoða á Hringbraut

Kona var flutt á sjúkrahús vegna gruns um reykeitrun eftir að eldur kom upp í fjölbýlishúsi við Hringbraut í Reykjavík rétt fyrir miðnætti í nótt. Samkvæmt upplýsingum slökkviliðs bjó konan í íbúðinni sem eldurinn kom upp í en eldurinn kom upp í stofu íbúðarinnar. Allir íbúar hússins komust út áður en slökkvilið kom á staðinn og gekk slökkvistarf greiðlega. Ekkert liggur fyrir um upptök eldsins að svo stöddu

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert