Kona handtekin vegna gruns um íkveikju í nótt

mbl.is/Júlíus

Kona, sem lögð var inn á sjúkrahús í gærkvöldi vegna gruns um reykeitrun, eftir eldsvoða í fjölbýlishúsi á Hringbraut um miðnætti í nótt hefur verið handtekin grunuð um íkveikju. Konan hefur samkvæmt upplýsingum lögreglu verið útskrifuð af sjúkrahúsi og er hún nú í haldi lögreglu. Miklar skemmdir urðu á íbúðinni sem eldurinn kom upp í en slökkvistarf gekk greiðlega og komust allir íbúar hússins út áður en slökkvilið kom á vettvang.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert