Þrír teknir ölvaðir undir stýri

Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu voru þrír ökumenn teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld og nótt. Tveir voru stöðvaðir í miðborginni.

Fyrst kona á sextugsaldri en hún var tekin skömmu fyrir miðnætti og klukkan að ganga þrjú var karlmaður á fertugsaldri stöðvaður fyrir sömu sakir. Þriðji ökumaðurinn var svo tekinn í Kópavogi um fimmleytið í nótt en sá er karlmaður á fimmtugsaldri. Hinn sami má líka búast við sekt fyrir hraðakstur. Til viðbótar stöðvaði lögreglan ungan ökumann sem hefur aldrei öðlast ökuréttindi. Sá er 16 ára og vantar enn nokkra mánuði upp á til að fá bílpróf.

Átján umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á síðasta sólarhring, nær öll minniháttar. Í fjórum tilfellum var um afstungu að ræða. Lögreglan var víða við hraðamælingar og voru þó nokkrir ökumenn teknir fyrir hraðakstur. Ekki var samt um neinn ofsaakstur að ræða.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert