Nýr búnaður fyrir þyrlur Landhelgisgæslunnar

Þyrlur landhelgisgæslunnar fá fötu til að slökkva skógarelda.
Þyrlur landhelgisgæslunnar fá fötu til að slökkva skógarelda. mbl.is/Landhelgisgæslan

Landhelgisgæslan hefur fengið búnað í þyrlur sínar sem er sérstaklega hannaður til að slökkva gróðurelda. Það er sérhönnuð vatnsfata sem rúmar 2000 lítra af vatni.

Brunamálamálastofnun sem hafði frumkvæði að því fyrir nokkru að kaupa þennan búnað fékk jafnframt eftir liðsinni Skógræktar ríkisins, Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, Almannavarnardeildar Ríkislögreglustjóra og Landhelgisgæslunnar.

Þessar stofnanir skiptu með sér kostnaðinum og hefur búnaðurinn nú verið afhentur Landhelgisgæslu Íslands.

Að sögn Björns Karlssonar brunamálastjóra lét Brunamálastofnun þýða kennslubók um viðbrögð við gróðureldum en Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands fjármagnaði útgáfu bókarinnar. Bókin verður notuð til að mennta viðbragðsaðila um slökkvistarf þegar gróðureldar verða og er ætlunin að gera sérstakt átak í fræðslu hvað þetta varðar.

Í haust mun svo sænskur sérfræðingur koma til landsins og halda námskeið fyrir þyrluáhafnir og stjórnendur slökkviliða á landi um hvernig best sé að nýta búnaðinn.

Björn Karlsson brunamálastjóri segist vera mjög ánægður með samstarfið við stofnanirnar sem aðstoðuðu við kaup á búnaðinum enda er mikilvægt, sérstaklega í ljósi eldanna á Mýrum í fyrra, að slíkur búnaður sé til staðar hjá Landhelgisgæslunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert