Í tilkynningu samtakanna segir að æfinga- og eftirlitsflug á borð við þetta skapi hættu fyrir almenna flugumferð og þjónar engum hagnýtum tilgangi. Enn meiri hætta skapist þegar NATO-ríkin senda herþotur sínar til móts við rússnesku þoturnar og fylgja þeim eftir í fluginu.
Fréttatilkynning hernaðarandstæðinga:
Samtök hernaðarandstæðinga mótmæla flugi rússneskra herþota við strendur Íslands. Æfinga- og eftirlitsflug á borð við þetta skapar hættu fyrir Skemmst er að minnast að slík loftfimleikaæfing endaði með ósköpum fyrir nokkrum árum þegar bandarísk njósnaflugvél rétt undan ströndum Kína rakst á kínverska þotu sem hafði verið send til að elta hana uppi.
Samtök hernaðarandstæðinga árétta andstöðu sína við umferð allra vígtóla í íslenskri lögsögu, hverrar þjóðar sem þau kunna að vera. Ferð rússnesku vélanna er dapurlegur endurómur frá tímum kalda stríðsins, en kemur því miður ekki á óvart enda virðast ráðamenn víða um lönd kappkosta að blása lífi í glæður þess. Má þar nefna þá viðleitni Bandaríkjastjórnar að koma sér upp gagneldflaugakerfi og virðingarleysi stjórnvalda í Bandaríkjunum og Rússlandi gagnvart ýmsum afvopnunarsamningum. Þá má á það minna að hernaðarbandalagið NATO hefur á síðustu árum orðið sífellt árásargjarnara og uppivöðslusamara.
Íslenskum stjórnvöldum væri sæmst að vinna að framgöngu friðar á alþjóðavettvangi í stað þess að ríghalda í gamla heimsmynd. Síst af öllu eiga Íslendingar að hafa frumkvæði að heræfingum hér á landi, sem augljóslega munu leiða af sér enn tíðari ferðir herflugvéla hér við land – boðinna jafnt sem óboðinna.„“