Eldur á eyðibýli á Suðurnesjum

Víkurfréttir/Hilmar Bragi

Tilkynnt var um eld í eyðibýlinu Litli Hólmur við Leiru á Suðurnesjum í gærkvöldi um klukkan hálf ellefu. Ekki hefur verið búið í húsinu lengi og er ekkert rafmagn þar svo reikna má með að um íkveikju hafi verið að ræða. Húsið var þó svo að segja ónýtt fyrir að sögn lögreglu svo skemmdir voru ekki teljandi. Húsið var alelda þegar að var komið en slökkvistarf gekk vel.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert