Maðurinn sem lést í vélhjólaslysinu á Krýsuvíkurvegi í gær hét Magnús Jónsson. Hann var 32 ára gamall búsettur í Jöklaseli í Reykjavík. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu staðfesti nafn hans fyrir skömmu.
Magnús var barnlaus en lætur eftir sig sambýliskonu.