Bíll fór útaf á Leiruvegi; endaði hálfur úti í sjó

mbl.is/Skapti

Bíll fór útaf á Leiruvegi við Akureyri rétt fyrir hádegi í dag og endaði niðri í fjöru úti í sjó. Tvennt var í bílnum og mun ekki hafa hlotið meiðsl. Tildrög óhappsins voru þau að ökumaður bílsins fékk flogakast og rakst bíllinn fyrst utan í brúarhandrið og fór síðan niður í fjöruna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert