Lögreglan leitar enn ökumanns

Frá vettvangi í kvöld.
Frá vettvangi í kvöld. Víkurfréttir/Þorgils

Lögreglan á Suðurnesjum leitar enn ökumanns sem flúði af vettvangi eftir að hann ók á fjögurra ára gamalt barn á mótum Vesturgötu og Birkiteigs í Reykjanesbæ um kl. 17 í dag. Barnið var flutt alvarlega slasað á slysadeild í Reykjavík.

Lögregla lýsir eftir bláum skutbíl sem sást yfirgefa vettvanginn. Þeir sem geta gefið frekari upplýsingar um atburðinn eða bíl sem svarar þessari lýsingu eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 112.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert