Leit stendur enn yfir

Lögreglumenn að sjást hér að störfum í gærkvöldi.
Lögreglumenn að sjást hér að störfum í gærkvöldi. Víkurfréttir/Þorgils

Lögreglan á Suðurnesjum leitar enn að ökumanni sem ók niður ungan dreng í Reykjanesbæ um kl. 17 í gær. Ökumaðurinn lét sig hverfa af vettvangi. Lögreglan heldur leitinni áfram. Drengnum er haldið sofandi í öndunarvél á slysadeild Landspítalans.

Lögreglan kannaði í gærkvöldi og í nótt allar vísbendingar sem henni bárust. 

Lögregla lýsir eftir dökkleitum eða bláum skutbíl sem sást yfirgefa vettvanginn. Hugsanlegt er að dæld sé á bílnum framanverðum.

Þeir sem geta gefið frekari upplýsingar um atburðinn eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 112.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert